Skvízan, hver er eiginlega þessi skvísa? Saga skvísunnar í dægurmenningu, frá bókmenntum til hvíta tjaldsins er rannsökuð, sem og birtingarmyndir skvísa frá degi til dags. Hvaða bókmenntir eru konubókmenntir og hvers vegna? Er Great Gatsby skvísubók? (svarið er já) Hver ákveður hvað einkennir góða skvísu og hvað gerir verk að skvísuverki?
Við kíkjum líka til tónlistarinnar og nemum staðar hjá Ariönu Grande, veltum fyrir okkur fegurðarstöðlum og margbreytilegri stöðu femínismans.