Ég setti mér það markmið að lesa hundrað bækur 2020, sem ég hef og gert. Hér eru þær 10 bestu.
1. It‘s Not Okay to Feel Blue and Other Lies
Ég las þessa bók þegar mér leið ekki vel (sjá 5. útgáfu Flóru) og hún hjálpaði mér mikið. Hún hjálpaði mér að sjá hlutina skýrar. Að vera með eðlileg viðmið fyrir tilfiningarnar mínar og væntingar. Að sjá að ég væri ekki eitt í erfiðleikunum mínum heldur væru erfiðleikarnir eitthvað sem einfaldlega kæmi fyrir fólk, allskonar fólk, á öllum aldri og út um allt.
Form frásagnanna er afar fjölbreytt, allt frá ljóðum yfir í smásögur og bréf til fráfallinna ættingja. Ýtt er á allan tilfiningaskalan og kenndu mér ýmislegt um andlega líðan. Mæli með þessari bók fyrir alla sem eru að ströggla við andlega líðan og alla sem þekkja einhvern sem er að því (sem sagt bara fyrir alla).
2. The Boy, the Mole, the Fox and the Horse
Teiknuð bók um ferðalag drengs. Hann hittir fyrir moldvörpu, ref og hest. Þau fjögur eiga með sér innihaldsríkar samræður um ástina og tíman, lífið og hvernig vinskapur virkar. Það er mikið um svona puntbækur og platta núna með mis-góðum kvótum í hina og þessa, sem virðast kannski vitur en rista ekki djúpt. Þessi bók kemur hins vegar með djúpu kvótin. Og þau eru öll fallega myndskreytt. Uppáhalds kvótið mitt:
„Doing nothing with friends is never doing nothing, is it?“ asked the boy.
„No“ said the mole.
3. Norwegian Wood
Murakami er einn af þektustu höfundunum á þessum lista. Eftir lestur þessarar bókar skil ég það vel. Stíllinn hans er óhefðbundinn bæði í orðavali og í því að hann kannar karakterana sína djúpt. Mótíf þeirra og hugsanir sjást í textanum þó þau séu oft umvafin hlutgervingum eða birtist í myndlíkingum. Þessi bók fjallar um Toro Watanabe sem lítur til baka á ævi sína og samböndin sem mótuðu hann sem mest. Fyrst eru það Kizuki og Naoko, æskuvinir hans, bæði þjökuð af mikilli depurð og erfiðleikum. Seinna kynnist hann svo Midori í háskólanáminu sínu í Tokyo sem er all-ólík Naoko en tengist samt sem áður Toro sterkum böndum. Óhefðbundin en falleg leið til að fjalla um ástina.
4. Her Body and Other Parties
Smásagnasafn með sögum sem allar fjalla að einhverju leiti um kvenlíkamann og eignarhald yfir honum. Margar með smá hrollvekju ívafi eða þá vísindaskáldsöguþráðum. Þær skilja mann eftir hugsandi og velta við ýmsum steinum sem ég gerði mér ekki grein fyrir að væru þarna í huga mér. Merkileg bók höfundar sem er tiltölulega nýkomin á senuna.
5. Genderqueer
Ég fann þessa bók í bókabúð í úthverfi Montreal. Ég var þegar með of margar bækur sem ég ætlaði að taka heim svo ég þurfti að velja milli þessarar og bókar sem hét Mars. Ég valdi þessa. Ég sé ekki eftir því.
Þetta er eina myndasagan á listanum. Líka eina ævisagan og ein tveggja sem eru sögur sannra atburða. Í bókinni fer Maia yfir æskuna sína og því hvernig hán tókst á við það að vera kynsegin, að upgötva eigið kyn og að sætta sig við það. Áður en ég las þessa bók hafði ég aldrei heyrt (-lesið) kynseginmanneskju segja frá erfiðleikum sínum við að lifa með eigin kyni. Ég hafði bara séð glamúrmyndir af fallegu fólki að ögra kynjaboxunum og tala um frelsið sem því fylgdi að vera „ekki bara karl eða kona“. Þarna var loksins einhver sem átti í erfiðleikum með að finna sig og sætta sig við það sem hán fann. Sýndi ekki bara glanshliðina.
6. Exhalation
Ég er alger sucker fyrir góðum vísindaskáldsögum. Hvað þá smásögum. Að því sögðu, þá er Ted Chiang einn besti. Sögurnar hans eru allar svo ótrúlega frumlegar. Hver saga gerist í algerlega nýjum, sjálstæðum heim. Stundum á ég erfitt með því að trúa að hann skrifi allar þessar sögur, því þær eru eins og þær komi frá mismunandu höfunum. Hann dregur hugmyndir sýnar jafnt úr tækninýjungum og biblíusögum, distópískum klisjum og utópískum draumsýnum.
7. Þriðjudagur með Morrie
Mitch, hið almenna meðalljón í bandarískum viðskiptaheimi tíunda áratugsins, á í erfiðleikum með að skilja sjálfan sig, hvað þá tilgang lífsins. Morrie er gamli menntaskólakennarinn hans. Hann er að deyja. Svona lísti pabbi fyrir mér þessari bók. Án þess að fegra það neitt fannst mér hún hljóma frekar leiðinlega. Sannsöguleg bók um miðaldra hvítan síshet mann að tala við annan ennþá eldri mann af sömu sort? Er það ekki önnur hver bók?
En þessi hefur eitthvað sérstakt. Eitthvað alveg ferskt í því hvernig Mitch og þá sérstaklega Morrie nálgast dauðan. Morrie hefur einstaka sýn á lífið og nálgast þvi dauða sinn á einstakann hátt. Hvort það tengist því að hann er við dauðans dyr eða því að hann er einstakur maður til að byrja með kemur á sama stað niður. Þessi bók lét mig hugsa um lífið og tilveruna á máta sem ég geri yfirleitt bara þegar einhver í lífinu mínu deyr. Það hljómar kannski eins og bestu vangavelturnar. En ég kunni að meta þær. Kannski kemur hún þér líka á óvart.
8. Women Don‘t Owe you Pretty
Sko. Þessi. Bók. Er. BOMB.
Floss sem skrifar hana er yngri en ég og tíu sinnum meira kúl. Sýn hennar á feminisma, sjálfstraust og samskipti er fersk, framsækin og djörf. Þessi bók lét mig endurhugsa sjónarhorn mitt á svo marga vegu. Hluti sem ég hélt ég væri sko alveg með á hreinu verandi langtíma aktívur femínisti. Hún mun enda mörg sambönd, þessi bók, og þvinga margar manneskjur að gera sér grein fyrir eigin gildum. Ef þig vanntar smá kraft í sjálfið og sjálfskoðunina er þetta málið. (Ath hún fæst í Eymundsson)
9. The Dispossessed
Ursula er án efa uppáhalds vísidaskáldsögu-höfundurinn minn. Sögurnar hennar eru frekar eins og mannfræðirannsóknir en saga af ókönnuðum plánetum og skrítnum verum. Bækurnar innan Heinish-seríunnar eru ótengdar hvað varðar persónurnar en gerast þó allar innan sömu stóru heimsmyndarinnar. Því er hægt að lesa þær í hvaða röð sem er en því meira sem maður les því fleiri vísbendingar sér maður í textunum.
The dispossessed er með lengri sögunum hennar. Hún gerist á tvíburaplánetunum Anarres og Urrah og segir af æfi mannsins Shevek. Hann elst uppá Anarres sem er hrjóstrug pláneta byggð af fólki upprunalega frá Urrah sem hefur komið saman þarna til að stofna samfélag byggt á anarkíu og niðurbroti miðstýringar en fer í byrjun sögunnar til Urrah, fyrstur Anarres-manna, til þess að læra meir um hið kapítalíska samfélag þar og á móti kenna þeim eðlisfræðina sína.
10. The Power of Ritual
Casper ter Kuile er upprunalega frá Hollandi, ólst upp í Englandi og lærði seinna í Harvard í Bandaríkjunum. Hann heldur úti podcastinu Harry Potter and the Sacred Text með Vanessa Zoltan. Þau hafa kennd mér algerlega nýja leið til þess að fara með texta og finna þýðingu í því sem ég les. Þessu bók fer ennþá dýpra í þær aðferðir. Hún gaf mér líka nýja sýn á trú og samfélagsmyndun í kringum trú. Casper er alger snillingur þegar kemur að því að segja frá upplifunum sínum og rannsóknum. Ég myndi lesa hann þó það væru ritdómar um sjónvarpsauglýsingar. Þessi bók hefur mikið betra umræðuefni en svo og er því mun betri.
Vonandi vöktu einhverjar af þessum bókum áhuga þinn. Annars er hér tæmandi listi yfir allar hundrað og fimm bækurnar sem ég hef lesið á árinu.
bestu kveðjur,
Mars
Bækur 2020
1. Let it snow
2. Okfruman
3. My Heros Have Always Been Junkies
4. Sisterhood of the Traveling pants
5. Over the Top
6. Men without Women
7. Norwegian Wood
8. The Turf war
9. Artemis
10. The Boy in The dress
11. It’s Not Okay to Feel Blue and Other Lies
12. Amature
13. Mislæg gatnamót
14. Lumberjanes 1-3
15. Siggi sítróna
16. The Boy, the Mole, the Fox and the Horse
17. As the Crow Flies
18. Unicorn Variations
19. María og Margrét
20. Mockingjay
21. Hugmynd: Andvirði hundrað milljónir
22. Arrival
23. Leðurjakkaveður
24. Deff Republic
25. Mooncakes
26. The Butterfly Man & Other Stories
27. The First Men on the Moon
28. Lumberjanes 4-6
29. The Promise
30. Christmas Carol
31. All the wrong todays
32. Skúmaskot
33. Með lífið að veði
34. The Rift
35. The Search
36. Her body and other parties
37. Stökkbrigði
38. Find me
39. Tsasiki og Mútta
40. Wires and Nerves
41. Exhalation
42. Genderqueer
43. Laura Dean keeps breaking up with me
44. Kings, Queens and In-Betweens
45. Sönn saga
46. Þriðjudagur með Morrie
47. A Highly Unlikely Scenario
48. Sjúklega Súr Saga
49. Blátt blóð
50. Afkynjun og vananir
51. Divergen
52. Insurgent
53. Alger milli
54. Allegiant
55. Are you listening
56. The Beauty and the Beast
57. Myrkrið milli ljósastauranna
58. (Þjóðar) sálin hans Jóns míns
59. Tveir leikþættir
60. Menntuð
61. Mómó
62. Cairo
63. Four
64. I married my best friend to shut my parents up
65. The Subtle Art of Not Giving a Fuck
66. Lumberjanes 7-9
67. George
68. Lumberjanes 10-12
69. The Ballad of Songbirds and Snakes
70. The Alchemist (Nicholas Flamel)
71. Bónusljóð
72. Rocannon’s World
73. Planet of Exile
74. City of Illusion
75. Drenched Dreams
76. Run Time
77. Women don’t owe you pretty
78. Fence
79. A Sloth’s Guide to Mindfulness
80. The disposessed
81. Aldinmaukið hefur klárasat
82. The Word for World is Forest
83. Nú sker ég netin mín
84. No One is Too Small to Make a Difference
85. After Darkness
86. Mundu, líkami
87. North and South
88. Leiðin út í heim
89. Smoke and Shadow
90. Hot dog girl
91. The Gay Man’s Guide to Heterosexuality
92. Roadqueen
93. Orange World
94. Mánasteinn
95. Lumberjanes+Fence+Moonstruck
96. The Power of Ritual
97. The Gravity of Us
98. Jónatan Livington mávur
99. Commute
100. Johnny Would You Love Me if my Dick was Bigger
101. Heartstopper 1
102. Heartsopper 2
103. Ender’s game
104. Ástarsögur íslenskra karlmanna
105. A War of Gifts