Konur í nýsköpun: Birna Bragadóttir, stjórnarformaður Hönnunarsjóðs
Gestur Ölmu Dóru í tólfta þætti af konum í nýsköpun er Birna Bragadóttir, stjórnarformaður Hönnunarsjóðs. Auk þess að gefa góð ráð fyrir umsækjendur sjóðsins ræðir Birna sína eigin vegferð og fjölmörgu verkefni í þættinum. Birna er ötul talskona jafnréttismála og kemur með frábæra punkta um það hvernig er hægt að stuðla að jafnrétti í styrkjaúthlutunum, starfsauglýsingum og viðskiptalífinu öllu.